| Velkomin á heimasíðuna hjá flottustu hundum í heimi |
| Þetta eru Zizou og Keano ofurhundar |
|
|
Um mig:
Zizou var skírð í höfuðið á Zinadine Zidane en hún er samt tík :)
Hún er Siberian Husky hundur sem fæddist í Missouri hjá ræktandanum mínum. Hún fæddist 28. mars 2008. Hún er svört og hvít með SKÆR blá augu sem geta dáleitt hvaða mann. Keano var skírður í höfuðið á Roy Keane :) Hann er líka Siberian Husky hundur sem fæddist í Michigan hjá ræktanda sínum henni Judy Karnovanda. Hann fæddist 10. september 2008. Hann er hvítur og grár með eitt blátt auga og eitt brúnt með smá bláu í, sem er hans séreinkenni. Eigendur okkar (foreldrar okkar :)) eru Kristín Arna og Jökull. Við búum öll saman í Bandaríkjunum. Það sem okkur finnst skemmtilegast að gera er að hlaupa um inni og elta hvort annað, slást allan daginn, borða (eða það er meira Keano), sofa (það er líka meira Keano), busla í vatninu (það er reyndar bara Zizou), fara í göngutúra í skóginum okkar og elta íkorna og dádýr og vekja foreldra okkar með yndisfögrum söng haha |
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 3050 |